Sveinn (1964) er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Sonur Eyþórs Þorlákssonar (1930), gítarleikara og Sigubjargar Sveinsdóttur (1941-1978), flugfreyju. Sveinn hóf ungur nám í klassískum gítarleik hjá föður sínum. Hann hefur samið nokkur verk og kennsluefni fyrir gítar. Frá árinu 1989 hefur Sveinn þróað upplýsingakerfi fyrir tónlistarskóla. Sveinn er búsettur í Setbergshverfinu í Hafnarfirði ásamt Kristínu Björgu Ólafsdóttur (1964), hjúkrunarfræðingi.