English
|
Español
|
Íslenska
Gítarverk dagsins
Kennslubækur
Stúdíur
Safnhefti
Einleiksverk
Dúettar
Tríó
Kvartettar
Aðsent
Tónfræði
Nótnaskrá
Höfundar
Allt
Gripbrettið
Eyþór Þorláksson
Sveinn Eyþórsson
Trausti Thorberg
Ljósmyndir
Tenglar
Samband
YouTube
Facebook
Amazon
Eyþór Þorláksson
Eyþór Þorláksson er fæddur 1930 og byrjaði ungur að leika á hljóðfæri. Frá 1946 til 1992 lék Eyþór í ýmsum íslenskum og erlendum danshljómsveitum. Á árunum 1950 - 1952 stundaði hann nám í gítarleik í Englandi, Danmörku og Svíþjóð og árið 1953 í Madríd hjá Daniel Fortea og Quintin Esquembre. Á árunum 1954 - 1957 lærði hann hljómfræði og kontrapunkt hjá Dr. Urbancic og 1958 - 1961 var hann við framhaldsnám í gítarleik hjá Garciano Tarragó í Barcelona. Síðan hefur hann verið aðal gítarkennari við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
og hefur útsett og skrifað mikið
kennsluefni
fyrir gítar, en er nú hættur störfum og heldur áfram að
útsetja
og
semja
fyrir gítarinn.
Graciano Tarragó með Eyþóri